Ég nota þorskhausa á manndýrin mín. Það er ef til vill ekki alveg augljóst í fyrstu vegna þess að ég sæki fyrirmyndir mínar í þurrkaða þorskhausa, skreið, sem ég finn bæði í skreiðarhjöllum eða þurrka sjálfur það sem ég veiði. Ég teikna svo eftir skreiðarhausunum og nota í myndgerðina. Þannig er um raunveruleg portrett að ræða í öllum tilvikum.
Þurrkaðir eru hausarnir óendanlega fjölbreyttir og tjáningarríkir.
Fyrir mér er þorskhausinn fyrst og fremst tákn um íslenska lýðveldið og nútíma íslensku þjóðarinnar í alsnægtum en einnig um fáránlega miskiptingu og efnahagslega og pólitíska spillingu og er á þann hátt einnig frásögn um samskonar ástand allstaðar á Vesturlöndum.
Mannslíkamar með dýrshaus eru æfafornt fyrirbæri í myndtjáningu. Egyptar og Grikkir gerðu slíkar myndir til að útskýra goðafræði sína. Nær okkur í tíma er Disney sem gefur dýrunum mannlega eiginleika – manngerir dýrin. Ég geri þveröfugt. Ég „dýrgeri“ manninn.
Á sýningunni eru 19 málverk frá 2015-2016. Öll eru þau unnin sérstakleg fyrir þessa sýningu. Ég nota akrýlliti og mála á grafíska filmu með pappírsbaki. Sýningin er hluti af þeim myndheimi sem ég hef verið að þróa síðan um 2000 og kalla Codhead. Þessi sýning er nr. XII.
Verkin eru pólitísk og frásagnarleg og fjalla öðru fremur um misbeitingu valds hinna hraðvaxandi auðvaldsstjórna og hættulegustu farsótt sem plagað hefur mannkynið: GRÆÐGI!
Um verkin á sýningunni.
"Vald" alias Mr.Trump´s Cabinett Sjö málverka röð. Portrett er oft merkileg tjáning um stöðu einstaklings í samfélagi. Víða er hægt að sjá raðir af portrett-myndum þar sem hugmyndalegt og efnislegt vald er undirstrikað og sýnt hversu fast valdið er í sessi þar sem það hefur gengið mann fram að manni – elítan hefur tögl og hagldir. Aðall miðalda tjáði sig á þennan hátt. Einnig einræðistjórnir s.s eins og í gömlu Sovétríkjunum og næst okkur í tíma sjáum við slíkar raðir á göngum stórbankanna og í húsakynnum stóru stjórnmálaflokkanna. Áhorfandi gaf seríunni gælunafnið Mr.Trump´s Cabinett sem er góð viðbót.
"Rat race" Brjálæði og einsleitni samfélags, græðgi og stanslaus leit eftir fullnægju sem alltaf er utan seilingar. Græðgin er andleg eyðimörk. Kapphlaupið – eftir meiru. Meira og meira og ennþá meira. Ekkert er eins einsleitt, hugsunarlaust og menningarsnautt eins og óseðjandi græðgi.
"Party Card / Flokksskýrteini" Hæfileikar, menntun og snilligáfa er það sem ræður úrslitum þegar metnaðarfull mannveran klífur metorðastigann. Þegar forystudýrin í hjörðinni velja og útdeila stöðum og verkefnum eru það þessir eiginleika sem öllu ráða. Er það ekki?
Nei, það er flokksskýrteinið.
"Dans hinna særðu þorska" Blóðgaður, slægður og flakaður þorskur stígur dans í sælöðri og blóðrauðum sjó. Um það er ekkert meira að segja nema að mig vantar tónskáld til að semja tónverkið.